Aðrar meðferðir
Hárflutningur er talinn besta varanlega lausnin fyrir þá sem þjást af hárlosi. Ef þú ert ekki tilbúinn að gangast undir slíka aðgerð enn þá koma ýmsar aðrar aðferðir til greina sem þú vilt ef til vill reyna:
Regaine
Lyfið Regaine (þannig skráð á Íslandi en nefnist Rogaine í Svíþjóð og víðar) er vökvi sem er borinn eða úðaður í hársvörð einu sinni til tvisvar á dag. Þegar best lætur örvast vöxtur þunnra hára og fallinna auk þess sem núverandi hárvöxtur styrkist. Sé meðferð hætt gengur ávinningur lyfsins til baka á fjórum mánuðum. Regaine er bæði ætlað körlum og konum. Rogaine
Propecia
Propecia er lyf í töfluformi ætlað til inntöku einu sinni á dag (virka efnið nefnist finasteríð). Um það bil 50% karla sem taka Propecia greina frá minnkandi skallamyndun. Skammtastærðin 1 mg á dag dregur úr ummyndun testósterons í DHT um 80%. Sé meðferð hætt gengur ávinningur lyfsins til baka á um það bil sex mánuðum. Propecia er eingöngu ætlað körlum. Propecia